Í þessum fallega myndskreyttu og skemmtilegu bókum er barnið aðalsögupersónan. Nöfn vina, aldur barnsins og heimili koma einnig fyrir í sögunni.
Bækurnar eru skemmtilegar gjafir þar sem hægt er að setja inn frá hverjum þær eru og af hvaða tilefni þær eru gefnar. Það vekur áhuga barnsins á lestri að sjá nafn sem það þekkir í bók og gerir lestrarstundina enn ánægjulegri.
Bækurnar Batman og Ballerínu prinsessan eru 22 blaðsíður. Í þeim hjálpar barnið Batman að leysa ráðgátuna um stolna vélmennið eða er prinsessa sem lendir í skemmtilegu ævintýri.

- - Sigríður Ástmundsdóttir, 4 ára, var á gangi nálægt heimili sínu á Selfossi. Hún var að horfa á fiðrildin leika sér í blómunum og varð undrandi þegar til hennar komu konungur og drottning.
- - Tryggvi Ólafsson , 7 ára, leit út um gluggann á leigubílnum. Hann var mjög spenntur. Allt í kringum hann voru skýjakljúfar Gotham borgar
Þú pantar bók með því að senda póst á bokinmin@bokinmin.net ásamt þeim upplýsingum sem þú vilt að komi fram í bókinni.
Þær upplýsingar sem þú sendir mér eru:
- Fullt nafn barnsins
- Hvað er barnið kallað daglega (t.d. Sigurður - Siggi, Gunnar Þór- Gunnar)
- Aldur barnsins
- Nafn á heimabæ
- Nöfn 3 vina eða ættingja
- Kveðja sem birtist á fyrstu blaðsíðunni (35 bil)( t.d. Til hamingju með afmælið, Bestu kveðjur, Gleðileg jól, Láttu þér batna...) Þarf ekki að velja
- Frá hverjum er bókin. Birtist fremst og aftast (35bil) (t.d. Frá mömmu og pabba, Jólasveininum, Stínu frænku...) Þarf ekki að velja
- Dagsetning sem birtist á fyrstu blaðsíðunni.(t.d. afmælisdagurinn, jól 2008...) Þarf ekki að velja
Bókin kostar kr. 2400 kr. með sendingarkostnaði.
Greitt er inn á reikning 586-26-100020 á kt.020572-5079 og mjög mikilvægt er að setja nafn barnsins sem skýringu fyrir greiðslu og senda staðfestingu á netfangið bokinmin@bokinmin.net.
Þú lætur mig vita hvert á að senda bókina og hún er komin innan viku til þín
Góða skemmtun!
www.bokinmin.net
bokinmin@bokinmin.net